Kalli Tomm var einstakur hirðumaður; það var sama hvort það var húsið hans, bílinn eða annað sem að hans úthaldi laut, allt varð að vera í toppstandi og snyrtilegt. Það sama átti við um bræður hans, en enginn þeirra komst með tærnar þar sem Kalli hafði hælana í þessum efnum.
Á einni myndinni sem fylgir þessari grein er hann með einn fyrsta bílinn sinn, sem var A 28. Seinna fékk hann númerið A 828, sem var til dæmis á “pissubílnum”, sem Kalli keyrði um götur bæjarins áður fyrr, til að rykbinda þær. Það var áður en malbikið kom. Það var mikið sport hjá ungviði bæjarins, að hlaupa á eftir “pissubílnum” með það markmið, að komast í bununa.

Hér er gamli A 1828 á leið í sveitina. Hann er fullkomlega gangfær, en ekki á númerum, þannig að hann fékk far á vagni
Það mun hafa verið árið 1962, sem kalli kaupir sér Benz fólksbíl í félagi við Jón Emil son sinn. Seljandinn var Snorri Ólafsson, læknir í Kristnesi, sem hafði átt bílinn frá því hann var fluttur til landsins. Þeir feðgar byrjuðu á því að ryðverja bílinn og það var nú ekki kastað höndunum til þess verks. Þeir fengu inni hjá “Geira bróður” á Bifröst og nostruðu við hvern krók og kima í undirvagninum. Kalli setti númerið A 1828 á bílinn. Hann er módel 1955.
Þegar Jón Emil fór að læra flugvirkjun í Bandaríkjunum keypti Kalli hans hlut í Benzanum og átti hann einn eftir það. Bílinn var alltaf gljáfægður hjá Kalla og frá því hann lést hefur Benzinn staðið inni í bílskúr við Hafnarstræti 15. En nú hefur húsið verið selt úr fjölskyldunni, þannig að það þurfti að fjarlægja bílinn. Það var gert um síðustu helgi og nú er Benzinn kominn til Sverris Ingólfssonar á Ystafelli. Þar verður hann staðarprýði, því bílinn ber eiganda sínum gott vitni. Hann er keyrður 176 þúsund kílómetra.















